Nú er Eiríki Rauða 2007 lokið og búið að senda Simon heim eftir ánægjulega viku. Okkur Ritu langar að þakka öllum sem komu á Eirík í ár kærlega fyrir skemmtilega hátíð og jákvætt viðmót og ekki síst þeim mörgu sem lögðu hönd á plóg við skipulagningu og framkvæmd. Við söknuðum Ísfirðinganna sárt en vonumst til að sjá þá að ári, enda sjónarsvptir af stórmennunum þar. Ef einhverjar ábendingar eða tillögur eru um hvað má betur fara, eða bæta við að ári þá endilega látið okkur vita og við tökum það til skoðunar. Nigel Foster hefur sýnt því áhuga að koma að ári en þar sem enn er langt þangað til þá er svo sem ekki hægt að slá neinu föstu.
Eftir spennandi keppni í Sprettróðrinum í ár er útkoman eftirfarandi:
1. Haraldur Njálsson Valley Rapier 32.69 33.42
2. Ólafur e Ocean X 35,08 34.00
3. Simon Osborne Valley Rapier 36,42 34,15
4. Steini Ckayak Valley Rapier 36.14 34.17
5. Ásgeir Valley Rapier 36,72
6. Guðmundur Breiðdal Kirton 37,01
7. Sæþór Valley Rapier 37.45
8. Veigar Valley Rapier 38.00
9. Ari Ben Valley Nordcap 39.65
10. Örlygur Steinn Lettmann 39,97
11. Tryggvi NDK Explorer 39.99
12. Páll Qajaq Kittivek 43.50
13. Hlynur Qajaq Sardinia 43.50
14. Kiddi Sigurjóns Buccaneer 47.55
15. Viðar Capella 48.54
Kvennaflokkur:
1. Carlotta NDK Explorer 49,97 48.95
2. Katla Qajaq Kittiwek 52.19 52.15
Bestu þakkir fyrir hátíðina enn og aftur
|