Seakayak Iceland
Heim - Home
Dagskrá Egils rauða 2008 Print E-mail

Seakayak Iceland og Kaj kynna:

Sjókayak hátíð Egils Rauða Norðfirði

helgina 6.-8. Júní 2008

 

Sérstakir gestir okkar í ár verða þau Freya Hoffmeister,

Nigel Foster og Kristin Nelson

Seakayak Iceland og Kaj kynna:

Sjókayak hátíð Egils Rauða Norðfirði

helgina 6.-8. Júní 2008

 

Dagskrá

 

Sérstakir gestir okkar í ár verða þau Freya Hoffmeister,

Nigel Foster og Kristin Nelson

 

 

Föstudagur

 

Mótsaðstaða í fjörunni við Norðfjarðarkirku opin.  Eins kaffihúsið Nesbær sem er samkomustaður mótsins. Þar getur fólk hist við komu á svæðið. 

Nesbær mun einnig bjóða uppá matartilboð fyrir mótsgesti á meðan móti stendur.

 

21:00

Fyrirlestur Freya Hoffmeister í safnahúsinu í Neskaupsstað.

 

 

Laugardagur

 

Námskeið

10:00

Freya verður með sín frægu veltunámskeið í sundlauginni og kennir á veltuvélina sína sem er bátur frá Japan sem allir geta velt að hennar sögn.

Verð: 4500kr fyrir hálftíma einkakennslu en á þeim tíma segist hún geta kennt hverjum sem er veltuna og bætt hana hjá öðrum.

 

10:00 - 16:00

Nigel Foster heldur námskeiðið Directional stability þar sem kennd er bátsbeiting og stjórnun sem karlinn er algjör snillingur í. Kirkjufjara.

10:00 – 11:30

Félagabjörgun ofl. Grunnatriði í sundlauginni Steini, Ari ofl.

Frí kynning fyrir nýliða og aðra sem vilja kynna sér félagabjörgunina eða önnur grunn atriði svo sem grunn árabeitingu ofl

 

Þyrlubjörgun Kl 13:00

Landhelgisgæslan kemur á þyrlu, kippir upp ræðara af kayak.

Þeir voru í miklu stuði í fyrra í Stykkishólmi og kútveltu ræðurum um allan sjó. Lentu svo á fótboltavellinum til að leyfa fólki að skoða þyrluna í návígi.

Hafið í huga að þyrlan er komin og byrjuð kl: 13:00.

 

15:00 Ferðir Frá aðstöðu Kaj, nesti og sund að róðri loknum

 

Fyrir vana

Fyrir vana. Lagt af stað kl: 14:30 ( eftir Þyrlubjörgun ) frá aðstöðu Kaj og róið út fyrir Nípu stapa eða lengra ef stemmingin er góð. Skemmtileg fjara með mörgum innskotum, víkum og skerjum sem gaman getur verið að leika sér í. Takið með nesti.

 

Styttri ferð hentar nýliðum eða þeim sem vilja styttri ferð

Fyrir þá sem vilja eittvað minna. Tilvalin fjölskylduferð fyrir alla þar sem róið verður í skjólsælli sjó.

 

20:00 – 21:30 ( ca. Allt eftir stemmingu )

Sameiginlegt grill á pallinum við safnahúsið fyrir mótsgesti.

 

22:00 Fyrirlestur Nigel Foster

Rifjar upp sögur úr hringferðinni ´77 og flettar inní myndir og upplifanir seinna á róðrarferlinum.

Sitjum eitthvað lengur í safnahúsinu eftir fyrirlesturin og ræðum málin. Annars verður Egilsbúð opin fyrir þá sem enn eiga eitthvað eftir óupplifað þann daginn.

 

 


 

Sunnudagur

 

 

Námskeið

 

10:00

Sundlaug –félagabjörgun ofl. Steini Óskar ofl.

Frítt

 

10:00

Freya verður áfram með veltunámskeiðin í sundlauginni.

 

09:00

Nigel heldur námskeiðið sitt Fun with Foster sem er námskeið í alls kyns kayak tækni byggð upp á skemmtilegum leikjum.

Kirkjufjaran

 

13:00

Sprettróðrarkeppnin og Veltukeppnin fræga strax þar á eftir fyrir utan aðstöðu Kaj.

Skráning á staðnum.

Keppnisgjald er 500,-kr í sprettinn. En frítt í veltukeppnina.

Ekki ólíklegt að Freya sýni okkur nokkur vel valin trix eftir veltukeppnina.

 

Eftir keppni

Annað hvort róið í Hellisfjörð og Viðfjörð á slóðir hvalveiðara og drauga endað á Norðfirði, eða Sandvík - Vöðlavík og endað á Reyðarfirði seinnipart mánudags eða á þriðjudag.

Ferðatilhögun ræðst af þátttakendum og aðstæðum.

 

Nánari upplýsingar og skráning hjá Steina

www.seakayakiceland.com

This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

GSM: 6903877

 

Og Ara hjá kayakklúbbnum Kaj

This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

www.123.is/kaj

GSM:8639939


 

 

 

Gistimöguleikar

Hótel Egilsbúð

Tónspil Gistiheimili

Hótel Edda

Hótel Capitano

Tjaldsvæði, á bakkasvæði

Svefnpokapláss í íþróttahúsi

1400logo

kayak

 





Lost Password?
No account yet? Register